Geysir
Skugga-Sveinn

Haust- og vetrarherferð Geysis 2017 ber heitið Skugga-Sveinn eftir samnefndu leikriti þar sem leiktjöld Sigurðar málara leika eitt af aðalhlutverkum.

Marshall
Restaurant + Bar

Hlýlegt andrúmsloft og hreinskiptin nálgun á matreiðslu og hráefni eru gildi Marshall Restaurant + Bar sem fengu að njóta sín í allri hönnun staðarins, í bland við tilvísanir í ris og hnig sjávar og hin mörgu blæbrigði hafsins.

Ragnar Axelsson
Andlit Norðursins

Undanfarin ár hefur Ragnar Axelsson kafað í myndasafn sitt og rýnt í gamlar dagbækur. Afraksturinn er hin magnaða nýja útgáfa Andlita norðursins. Sögurnar á bak við myndirnar, bæði skondnar og sorglegar, eru raktar og sýndar eru áður óbirtar ljósmyndir frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Þetta er bók sem gerir skil 30 ára vinnu og á sér enga hliðstæðu.

Bókin hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðirita og rita almenns efnis 2016.

Marshallhúsið

Marshallhúsið er ný miðstöð myndlistar í Reykjavík, þar sem Kling & Bang, Nýlistasafnið, Stúdíó Ólafur Elíasson hafa aðsetur. Einnig verður starfræktur veitingastaðurinn Marshall Restaurant + Bar.  Marshallhúsið er í byggingu fyrrum Faxaverksmiðjunna.  Húsið var byggt árið 1949 og var starfsemi í því í rúma hálfa öld, en það hefur staðið autt undanfarin ár. Hlutverk okkar var að hanna til grafískt einkenni, skilti og merkingar.

Geysir
Reykjavíkurnætur

Herferð Geysis 2016 sameinar krafta náttúru og borgar. Reykjavíkurnætur er óður til sköpunarinnar og tóninn er sleginn í nóttinni.

Við erum stolt af því að hafa unnið með Geysi frá upphafi.

Geysir
Tímarit 4. tbl.

Tímarit Geysis 2015 er tileinkað glímunni við að flytja út íslenskar hugmyndir. Tvær mismunandi forsíður prýða blaðið og sýna okkur hæfileikaríkar íslenskar leikonur. Rætt er við íslenska rithöfunda og tónlistarmenn og fjallað um endurkomu íslensku glímunnar í Haukadal.

Við erum stolt af því að hafa unnið með Geysi frá upphafi.

Geysir
Þrjár systur

Herferðin Þrjár systur þróast út frá kjarna Geysis. Það er í eðli Geysis að endurfæðast án þess að fórna fegurð og gæðum.

Við erum stolt af því að hafa unnið með Geysi frá upphafi.

Geysir
Portrett-herferð

Samstarf okkar við Geysis dýpkar enn með herferðinni Portrett. Ný skref eru tekin til að styrkja enn hið einstaka vörumerki Geysis. Nýr tónn er sleginn.

Við erum stolt af því að hafa unnið með Geysi frá upphafi.

Geysir
Tímarit 3. tbl.

Tímarit Geysis 2014 er tileinkað frjórri hugsun, frumkvöðlum og stakkaskiptum í nýsköpun. Nýjar hugmyndir skapa ný tækifæri og bæta lífsgæði okkar. Ferskar hugmyndir geta orðið að fallegum og notadrjúgum fatnaði. Okkur fannst góð hugmynd að segja frá því.

Við erum stolt af því að hafa unnið með Geysi frá upphafi.

Bioeffect
Green Stripes

Orf Genetics er stofnað af tveimur íslenskum vísindamönnum. Þeir fengu þá hugmynd að framleiða prótein og þróuðu út frá því vörulínu
fyrir alþjóðlegan markað. Íslenskt hugvit þarf
umbúðir sem tekið er eftir. Við fengum það
verkefni að hanna útlit fyrir Bioeffect.

Páll Stefánsson
Iceland Exposed

Ljósmyndir Páls Stefánssonar af Íslandi sýna lítt þekkt og framandi land. Mælikvarðinn setur áhorfandann úr jafnvægi: Er hann að horfa á eitthvað agnarsmátt eða eitthvað svo stórt að það á eiginlega ekki að vera hægt að ljósmynda það? Er þetta lítill lækur eða jökull séður úr gríðarlegri hæð? Er sprungan í íshellinum margra kílómetra djúp, eða er þetta bara rispa?

Kolabrautin
Restaurant

Það er lystaukandi að sýna ástina á fordrykkjum og fersku hráefni í máli og myndum. Okkar verkefni hefur verið að hanna útlit og matseðla fyrir Kolabrautina. Að fá vatn í munninn er því bara hluti af starfinu.

Ella
Perfume

Á skömmum tíma náði ELLA að skapa sér nafn sem gæðamerki. Það var okkur mikils virði að fá að marka með henni stefnuna frá upphafi. Með því móti tókst að búa til skýra heildarmynd og halda utan um vörumerkið allt frá auglýsingum til pakkninga.

Geysir
2013

Samstarf Geysis og E&Co þróast hratt og í herferðinni 2013 héldum við til fjalla.

Við erum stolt af því að hafa unnið með Geysi frá upphafi.

Bergsson

Hrein og bein matargerð. Hreint og ferskt hráefni. Hreinskiptin og skjót þjónusta. Pláss fyrir alúð og tími til að gera betur. Hreint og beint skal það vera, frá því smæsta til hins stærsta í allri hönnun.

Geysir
2010–2013

Fallegt samstarf kviknar í hjarta vörumerkisins.

Geysir kom með nýja hugsun í íslenska verslun. Rótgrónar hefðir í handverki hafa öðlast nýtt líf í nútímalegri hönnun. Ófrávíkjanleg krafa um upprunaleg gæði hefur skapað verðmæti sem höfða til flestra. Við erum stolt af því að hafa unnið með Geysi frá upphafi.